WebRICE
WebRICE (Web Reader Icelandic) er opinn veflesari fyrir íslensku.
Uppsetning og notkun:
Uppsetning krefst þess að vera með Node.js og npm uppsett á vélinni.
Hægt er að sækja tólið beint af GitLab síðunni, eða með git clone
:
git clone https://gitlab.com/icelandic-lt/tts/webrice.git
Eins og kemur skýrt fram á GitLab síðunni er uppsetning einföld:
npm install
og
npm run dev
Sem ætti að opna vefsíðuna:
Hægt er að prófa ýmsislegt, t.d. breyta talgervilsrödd /src/modules/SpeechManager.ts
í Karl eða Dora:
Eða bara sjá hvernig talgervillinn les annan texta (t.d. bara í index.html
):
Innleiða má veflesarann í aðrar síður, nánari upplýsingar eru á GitLab síðunni undir “usage”