Thrax g2p
Líkan rittákns-til-fónems, oftast kallað g2p-líkan (e. grapheme to phoneme model) er vörpun rittákna yfir í fónem (stundum kallað hljóðan).
Þetta er svo notað af talgervlum.
Thrax er tólasett til að byggja upp málfræði, og notar OpenFST fyrir stöðuferjöld (e. FST, Finite-state transducers).1
Uppsetning:
Til að setja tólið upp er mögulega best að nota Docker (sjá leiðbeiningar fyrir uppsetningu Docker á hinum ýmsu stýrikerfum).
Hægt er að sækja thrax-g2p tólið beint af GitLab síðunni, eða með skipanalínutólinu git
:
git clone https://gitlab.com/icelandic-lt/tts/g2p-thrax.git
og byggja svo docker myndina:
docker build -t "g2p-thrax:latest" .